Það er gott að skammast sín

Undarlegt hvað sumum finnst mikilvægt að hata aðra. Auðvitað gerir kristið fólk ekki svoleiðis, en þótt ótrúlegt megi virðast þá eru til einstaklingar sem ekki bara hata aðra heldur vilja að aðrir hati með sér. Þeir beita þá gjarnan einhverjum afbökuðum trúarkenningum, flokka fólk í þá sem eru "með" og hina sem eru "á móti" einhverri tiltekinni trú. Síðan er byrjað að rifja upp hvað "hinir" voru vondir við "okkur" hér í gamla daga, hvað þeir voru duglegir að drepa okkur þá og vilja örugglega halda áfram að drepa okkur núna í dag.

Ótrúlegt? Já, en satt. Þetta gerðist í fyrrum Júgóslavíu, hatursfullir menn og konur æstu upp til styrjaldar, til þjóðernishreinsana, fjöldamorða, fjöldanauðgana. Í nafni trúar, í nafni þess sem "hinir" gerðu í gamla daga. Sumir þessara hatursmanna eru núna látnir, aðrir í felum og aðrir sitja í fangelsi, en eflaust eru þeir miklu fleiri sem fóru með veggjum, hötuðu úr fjarska en létu aðra um að drepa.

Eigum við Íslendingar líka svona fólk? Ef svo er verðum við auðvitað að virða skoðanafrelsi þess og málfrelsi. Til allrar hamingju er enginn þannig hér á moggabloggi, eins og allir sjá sem fylgjast með umræðum.

Ef ég sæi slíkan hatursmálflutning en teldi að einstaklingurinn sem að baki honum stæði væri ágætis manneskja, kannski bara á villigötum, þá myndi ég reyna að telja um fyrir henni. Reyndar myndi ég gera meira, mér finnst hreinlega ekkert viðurstyggilegra en ofbeldi og ég myndi segja þeim sem það boða hreinlega að skammast sín. Já fyrirgefið orðbragðið.

En eflaust myndi viðkomandi manneskja fjarlægja slíka færslu, ef ég myndi skrifa hana. Það er kannski gott að skammast sín en það er ekki gott að láta aðra sjá það.

Kær kveðja

Brynjólfur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mofi

Margt gott í þessari færslu, góð grein.  Eitt samt sem ég vildi segja er að mér finnst ekkert að því að vera á móti hinni og þessari trúarskoðun. Það þýðir ekki að ég hati það fólk eða að ég vilji neyða það til eins eða neins enda ekki hægt að neyða einhvern til að trúa því sem ég vill að það trúi.  Finnst eins og ég er að enda þetta eftir að opna flóðgátt af athyglisverðum pælingum.

Mofi, 7.9.2007 kl. 14:27

2 Smámynd: Brynjólfur Þorvarðsson

Það er í lagi að vera á móti vitlausum skoðunum, þó það nú væri. En það er stutt á milli þess og hins, að vera á móti fólki af því að það hefur vitlausar skoðanir.

Eitt af því sem Dawkins bendir á og trúfólki finnst mjög óréttlátt er að trúarbrögð séu orsakir stríða (stundum eða oft eða eitthvað). Sú umræða sem sumir viðhafa hér á moggabloggi virðist ætluð til að sanna þetta. Það er verið að búa til andúð á öðru fólki með því að draga fram það versta í trúarbrögðum þess. Það er auðvelt, og jafn óréttlátt, að beita sömu aðferð á kristni.

Það væri miklu göfugra, og meira í samræmi við hugsjónir margra kristinna, að virða trú annarra og stuðla að friðsamlegum samskiptum. Íslam er að mestu leyti trú friðar, samúðar og guðhræðslu. Er kristni það ekki líka? Svo eru til öfgamenn sem mistúlka eitthvað í Biblíunni (sem er mjög auðvelt) eða eitthvað sem Múhameð sagði (sem er líka mjög auðvelt) og við hérna megin sjáum þessa vondu menn þeirra.

Á meðan hundruðir milljóna vilja bara stunda sín trúarbrögð í friði og hata ofbeldismenn jafn mikið og við þá eru einhver þúsundir ofbeldismanna sem frá okkur séð virðast vera fulltrúar allra sem játa sömu trú, en eru það alls ekki.

Brynjólfur Þorvarðsson, 7.9.2007 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband